22. ágúst 2007 klukkan 17:15
Jæja þá er kappinn kominn með nýja bloggsíðu og er þetta slóðin:
www.einarsson1.blogspot.com
Þetta er hentugri síða fyrir mig núna finnst mér því að ég get bloggað með símanum og sent myndir beint inn á bloggið samstundis og ég er að taka þær og svona.. eins og einmitt þegar ég var í Hamburg í gær.. Mjög sniðugt og gaman að geta sent svona beint inn á síðuna svo fólk fái beint í æð hvað er að ske..hehe :)
Gunnar Örn Einarsson
17. ágúst 2007 klukkan 22:12
Jæja þá verð ég að fara segja eitthvað.. Hún Margrét gerir gerir ekkert annað en að blogga, svo maður er auðvitað vel eftir í þessum málum og er að fara hysja upp um mig brækurnar og blogga eitthvað
Það er nú það helsta að frétta héðann að Margrét er kominn með bankareikning og danskan gemsa og númer auðvitað, svo nú er hægt að ná í hana dömuna.
Við erum búinn að kaupa sitthvora 3 mánuðina í ræktinni og svo er ég að æfa golfið á fullu. Ég er að fara í mót á sunnudaginn í juelsminde og það á auðvitað að lenda á palli þar.. annas er það mót aðallega hugsað sem æfing fyrir clubmesterskap mótið í horsens. Það er svona stórt og skemmtilegt mót í anda meistaramóts klúbbanna á íslandi
Svo það er laugardagur á morgunn og þá verður kíkt í ræktina, í golf og haft það gott.. En þangað til næst, have a good one
Svo læt ég myndirnar tala, smá bland, nóg búið vera að gerast
Ég og Óli Bjarki í góðum gír með Corona í hendi
Rúnni og Lilla saman upp í nýja bústaðnum hans Adda frænda
Margrét min, alltaf jafn sæt 
Guttarnir komnir í pottinn.
Strákurinn þreyttur eftir góðann sigur með Adda í golfinu
Addi, Rabbi og Rúnni bróðir
Ég út á golfvelli, á 9.braut á Horsens vellinum
Margrét min að taka sín fyrstu skref í golfinu, eða fyrstu högg
Ég nývaknaður að fá mér djús..hehe
Margrét min, sætust
Addi frændi í ham
Addi og Rúnni í mótinu á Öndverðanesinu um Versló
Ég að setja saman kommóðu upp í bústað hjá Adda og Dröfn

Frændurnir saman
Smiðirnir að fara yfir stöðu mála..hehehe
Thomas Ari ánægður í hoppurólunni sinni
Feðgarnir góðir saman
Gunnar Örn Einarsson
11. ágúst 2007 klukkan 09:44
Gunnar Örn Einarsson
07. ágúst 2007 klukkan 10:11
Gunnar Örn Einarsson
01. ágúst 2007 klukkan 09:04
Svaðalega fínn dagur í gær með fallegu konunni minni..
Eftir vinnu ákváðum við að fara heim til hennar og dressa okkur upp í fínt púss og fara niðri bæ á La prima vera. Þar fórum við í bestu 5 rétta máltíð sem ég hef bara fengið held ég, nei ég veit það!
Það var allt svo fínt og flott, mögnuð þjónusta og allt tipp topp, sem svo toppaði með þessum líka æðislega mat
Svo var rent heim í Njarðvík að spjalla við gamla settið og sækja föt og skila fötum í hreinsun..hehehe
Svo er gaman að segja frá því að Rúnni bróðir lenti í 2-3 sæti ásamt honum Birgi Leif í Nick Faldo pro-am mótinu í vikunni. Kalla það nú bara gott hjá drengnum..
Annas er ég að fara svo að taka þátt í mótum um helgina. Fyrst Stella cup held ég að það heiti, nema það sé annar bjór í ár sem að styrkir..
Og svo munum við Óli Bjarki etja kappi við þá bróðir og frænda í stóra Öndverðanesmótinu á laugardaginn og það verður hart barist á þeim vígvelli þar sem stálinn stinn munu mætast, eða ég og Rúnni og jelly belgirnir Addi og Óli munu stangast á..hehe
Hér eru svo myndir frá bústaðarferðinni um síðustu helgi, sem heppnaðist ótrúlega vel og var bara stuð og gaman á fólki.
Þarna erum við Jósep júdó-kappi í hægindum upp í bústað
Þarna er ég að leika vísdómstönn í actionnary held eg að það heiti..hehehe :)
Þarna eru næstum allir komnir saman í pottinn
Þarna eru Margrét, Jónína, Jósep, Svana og svo Haukur og Klara í skemmtilegri stellingu 
Þarna er liðið við matarborðið, svakalega góður matur hjá stelpunum..
Annas eru svo allar myndirnar inni á myndasíðunni hjá margréti minni..
Svo fór Margrét þessi elska á síðasta djammið með vinkonum sínum í bili og það var auðvitað svakalega gaman hjá þeim stöllum, enda ekki þekktar fyrir minna en stórskipulag og skemmtanir
Margrét min og Gerður,. sætar stöllur
Margrét í einhverjum jóga æfingum held ég..hehe
Margrét og Sessó
Allar saman, Margrét, Anna, Eva, Gerður og Sessó
Margrét í enn fleiri æfingum, liðug stelpan
Og Anna er þarna líka brosandi sínu breiðasta.
En þangað til næst, have a good one
Gunnar Örn Einarsson
27. júlí 2007 klukkan 11:09
Gunnar Örn Einarsson
27. júlí 2007 klukkan 10:57
Gunnar Örn Einarsson
26. júlí 2007 klukkan 09:49
Já Rúnni bróðir átti afmæli í gær og var farið heim í mat til mömmu og pabba. Mamma var með svakalega góðann mat og deserta og köku og allann pakkann eins og vanalega. Annars er annað í fréttum að Siggi félagi fór til spánar í viku en kemur heim í dag.Ég fór í golf síðustu helgi með Arnari og Óla bjarka. annas bara vinna og koma hjólinu á götuna og svona. Svo fórum við Margrét í mat til Snæju frænku Margrétar og fengum fínan mat, eitthvað sem ég hafði ekki smakkað áður. En það var fiskur með bönunum og einhverri sósu
Rúnni og Addi frændi eru svo að fara keppa í íslandsmótinu í golfi og mun það verða fróðlegt að sjá hvernig hann stendur sig þar kappinn.. Hann er nu öflugur kaddy hann Addi svo það ætti að reddast.
En þangað til næst, have a good one :)
Gunnar Örn Einarsson
20. júlí 2007 klukkan 09:27
Gunnar Örn Einarsson
18. júlí 2007 klukkan 16:07
Gunnar Örn Einarsson